Opnunarhátíð Heiðarborgar frestað
Opnunarhátíð Heiðarborgar í Hvalfjarðarsveit, sem átti að fara fram laugardaginn 3. október klukkan 13:30, hefur verið frestað. Ástæðan er sú að ekki hefur tekist að ljúka nauðsynlegri öryggisúttekt vegna brunavarna fyrir þann dag. Öryggi gesta og st
Opnunarhátíð Heiðarborgar í Hvalfjarðarsveit, sem átti að fara fram laugardaginn 3. október klukkan 13:30, hefur verið frestað. Ástæðan er sú að ekki hefur tekist að ljúka nauðsynlegri öryggisúttekt vegna brunavarna fyrir þann dag. Öryggi gesta og starfsfólks er haft í fyrirrúmi og því verður að bíða með hátíðlega opnun þar til öllum öryggiskröfum hefur verið fullnægt. Mikil tilhlökkun hefur verið fyrir því að taka glæsilegt mannvirki Heiðarborgar formlega í notkun. Ný dagsetning opnunarhátíðar verður kynnt um leið og hún liggur fyrir. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, er til svara ef frekari upplýsinga er óskað.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hvalfjarðarsveit
Heimild: Hvalfjarðarsveit