Opnun tilboða í verkið "Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða"

Tilboð voru opnuð þann 16. október í verkið „Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða“ í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdirnar fela í sér að efri hæð gamla stjórnsýsluhússins á Borg verður innréttuð sem kennslustofur og stoðrými

Opnun tilboða í verkið "Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða"
Mynd: Braggi.is

Tilboð voru opnuð þann 16. október í verkið „Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða“ í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdirnar fela í sér að efri hæð gamla stjórnsýsluhússins á Borg verður innréttuð sem kennslustofur og stoðrými fyrir skólastarf.

Alls bárust ellefu tilboð í verkið. Lægsta tilboðið, frá Probygg ehf, hljóðaði upp á 96.149.752 krónur. Næstlægsta tilboðið kom frá E. Sigurðsson ehf, upp á 99.093.796 krónur. Kostnaðaráætlun verksins var 115.191.979 krónur.

Önnur tilboð komu frá Tindhagi ehf (108.443.508 kr.), Verkeining ehf (108.598.778 kr.), K16 (109.586.960 kr.), Borg byggingalausnir ehf (106.887.900 kr.), All Verk ehf (112.136.053 kr.), Alefli ehf (113.698.716 kr.), HR smíði (123.288.867 kr.), Vörðufell (129.983.457 kr.) og Atlas verktakar ehf (134.184.596 kr.). Tilboðin eru birt með fyrirvara um yfirferð og niðurstaða útboðsins verður tilkynnt þegar þeirri yfirferð er lokið. Áætlað er að verklok verði 1. apríl 2027.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Grímnes- og Grafningshreppur

Heimild: Grímnes- og Grafningshreppur

Deila Facebook X LinkedIn