Opnir fundir um valkosti fyrir Vegamótalínu 2

Landsnet býður til kynningar á valkostagreiningu fyrir Vegamótalínu 2, sem er fyrirhuguð 132 kV loftlína á stöguðum stálröramöstrum milli Vatnshamra í Borgarbyggð og Vegamóta á Snæfellsnesi. Markmiðið með framkvæmdinni er að tvítengja Snæfellsnes og

Opnir fundir um valkosti fyrir Vegamótalínu 2
Mynd: Andrea Piacquadio / Pexels / Pexels

Landsnet býður til kynningar á valkostagreiningu fyrir Vegamótalínu 2, sem er fyrirhuguð 132 kV loftlína á stöguðum stálröramöstrum milli Vatnshamra í Borgarbyggð og Vegamóta á Snæfellsnesi. Markmiðið með framkvæmdinni er að tvítengja Snæfellsnes og auka afhendingaröryggi raforku á svæðinu, en Vegamótalína 1 er í dag eina tengingin. Línan verður fyrst um sinn rekin á 66 kV spennu.

Fundirnir verða haldnir á Hótel Hamri í Borgarnesi þann 7. október kl. 20:00 og í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi þann 12. október kl. 20:00. Á fundunum verður verkefnið kynnt og þátttakendum gefinn kostur á að koma með hugmyndir að línuleiðum og benda á áskoranir við leiðarval.

Allar tillögur verða metnar út frá umhverfislegum, öryggis- og hagkvæmnissjónarmiðum, auk verðmæta og samfélagslegra áhrifa. Valkostagreiningin er framkvæmd áður en umhverfismatsferlið hefst og mun nýtast við rannsóknir og frekari greiningar verkefnisins. Með tilkomu Vegamótalínu 2 skapast betri skilyrði til viðhalds og reksturs Vegamótalínu 1, sem verður áfram í notkun og mun fara á endurnýjunaráætlun.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarbyggð

Heimild: Borgarbyggð

Deila Facebook X LinkedIn