Framkvæmdaútboð opinberra aðila langt undir boðuðum áætlunum
Aðeins rúmur helmingur opinberra útboða, sem boðuð voru á árunum 2022–2025, varð að veruleika. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins (SI).
Aðeins rúmur helmingur opinberra útboða, sem boðuð voru á árunum 2022–2025, varð að veruleika. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins (SI).
Níu stærstu opinberu verkkauparnir, sem taka þátt í árlegu Útboðsþingi SI, boðuðu útboð fyrir samtals 737,3 milljarða króna á tímabilinu. Raunverulega buðu þeir út verk fyrir 416,2 milljarða króna, eða 56% af því sem lagt var upp með. Munurinn nemur 321 milljarði króna.
Hlutfall raunútboða af boðuðum útboðum var á bilinu 51–66% öll fjögur árin. Á sama tímabili boðuðu fyrirtækin fjárfestingu í verklegum framkvæmdum upp á 597,9 milljarða króna og nam raunfjárfestingin 533,9 milljörðum, eða 89% af áætlun.
Sveitarfélögin og félög þeirra stóðust áform sín best, buðu út 94% af boðuðu og fjárfestu fyrir 88% af áætlun. Hjá A-hluta ríkissjóðs námu raunútboð 62% af áformum en raunfjárfesting 101%. Hjá C-hluta fóru aðeins 37% boðaðra útboða í gegn, en fjárfestingin nam 75% af áætlun.