Ólafur S. Einarsson ráðinn framkvæmdastjóri Hitatækni og Fríorku

Mynd gerð með gervigreind (AI)
Mynd gerð með gervigreind (AI)

Ólafur S. Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hitatækni ehf. og Fríorku ehf. Ólafur hefur víðtæka reynslu af stjórnun í tæknidrifnu umhverfi, en hann starfaði sem framkvæmdastjóri KONE á Íslandi í tæp tuttugu ár og leiddi þar uppbyggingu félagsins.

Áður starfaði Ólafur hjá Siemens Wind Power þar sem hann stýrði stórum verkefnum á sviði iðnaðar og orkutækni, samkvæmt tilkynningu. Hann er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og býr yfir tæknilegum bakgrunni í bygginga- og framkvæmdastjórnun.

Hitatækni og Fríorka sérhæfa sig í loftræstingum, orku- og hitalausnum. Félögin leggja áherslu á að mæta aukinni eftirspurn eftir sjálfbærni og rekstraröryggi með faglegri ráðgjöf og heildarlausnum, segir enn fremur í tilkynningunni.

Sjá nánar: mbl.is

Deila Facebook X LinkedIn

Aðrar fréttir

📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →