Ólafsfjörður – Þjóðvegur í þéttbýli, 3. áfangi
Framkvæmdir eru hafnar við þriðja áfanga Þjóðvegar í þéttbýli á Ólafsfirði. Áætlað er að framkvæmdum ljúki 16. september.
Framkvæmdir eru hafnar við þriðja áfanga Þjóðvegar í þéttbýli á Ólafsfirði. Framkvæmdasvæðið nær frá Ægisbyggð til Tjarnarstígs að sunnanverðu og frá Ólafsvegi að Garðstíg að norðanverðu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki 16. september.
Í þriðja áfanga verður skipt um og breikkað steyptar gangstéttar að norðanverðu. Að sunnanverðu verður lagður malbikaður stígur í stað steyptrar gangstéttar. Jafnframt verður lögð ný hitaveita undir stíginn að sunnanverðu og skipt um inntök í þeim húsum sem þar eru. Rarik mun einnig leggja nýjan rafstreng á svæðinu.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Fjallabyggð
Heimild: Fjallabyggð