Ökumanni steypubíls bjargað úr Þjórsá
Ökumaður steypubíls var bjargað úr Þjórsá í kvöld eftir að bíllinn hafnaði í ánni við Sultartangastöð. Hann var fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar.
Steypubíll valt í Þjórsá við Sultartangastöð í kvöld eftir að hafa farið út af brú. Ökumaður bílsins, sem var einn á ferð, náði að komast upp á þak bílsins af eigin tilstyrk. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang og bjargaði honum þaðan.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi var ökumaðurinn ofkældur en annars ómeiddur. Hann var fluttur með þyrlu á Reykjavíkurflugvöll og þaðan með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Lögregla, sjúkraflutningar HSU og björgunarsveitir í Árnessýslu voru einnig kölluð á vettvang.
Tildrög slyssins eru ókunn en lögreglan á Suðurlandi og Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka þau. Landsvirkjun mun minnka vatnsflæði í ánni til að auðvelda björgun bílsins, sem ekki verður hægt að ná upp úr ánni fyrr en á morgun.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska