„Okkur finnst forgangsröðun Isavia ekki vera rétt“

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, gagnrýnir forgangsröðun Isavia vegna fyrirhugaðs hótels á Keflavíkurflugvelli og telur að auka þurfi samstarf við atvinnulíf á svæðinu.

„Okkur finnst forgangsröðun Isavia ekki vera rétt“
Mynd: mali maeder / Pexels

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, telur að Isavia ætti að auka samstarf og samskipti við atvinnulíf í nágrenni Keflavíkurflugvallar áður en ráðist verður í byggingu hótels innan flugvallarsvæðisins. Isavia hefur í hyggju að reisa hótel með 200 til 400 herbergjum, um 200 metra frá flugstöðinni og fimmtán metra frá nýrri byggingu sem er í hönnun. Áætluð lóðarstærð er 13.000 fermetrar, með möguleika á 20.000 fermetra byggingu á fjórum hæðum, en svæðið er nú nýtt sem bílastæði.

„Okkur finnst forgangsröðun Isavia ekki vera rétt,“ segir Vilhjálmur. Hann telur að Isavia ætti frekar að leggja áherslu á samskipti við þá atvinnustarfsemi sem nýtir sér starfsemi flugvallarins, líkt og hótel í grennd við hann. „Það er mjög erfitt fyrir hótelin að nálgast gestina í flugstöðinni út af aðgengismálum og öðru slíku. Nú ætlar Isavia að gera þeim enn erfiðara fyrir með því að byggja hótelið á bílastæðunum sem eru af skornum skammti og fara í samkeppni við þá atvinnustarfsemi sem er nú þegar.“

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hefur farið fram á fund bæjaryfirvalda og Isavia vegna þessara áforma. Í bókun ráðsins kemur fram að þau veki upp spurningar um hvort félagið fari með þessi áform út fyrir starfssvið sitt. „Við óttumst það að á meðan önnur hótel á svæðinu hafa ekki skýrt aðgengi að farþegunum þá muni þetta verða til þess að enn færri gestir komi inn í Reykjanesbæ, ef hótelið er staðsett á flugvellinum,“ segir Vilhjálmur.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →