Öflugur skjálfti við Nesjavallavirkjun

Öflugur jarðskjálfti, 4,1 að stærð, reið yfir suðvesturhorn landsins í nótt, skammt frá Nesjavallavirkjun. Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu.

Öflugur skjálfti við Nesjavallavirkjun
Mynd: pxhere.com (CC0)

Öflugur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorni landsins í nótt, 36 mínútum eftir miðnætti. Samkvæmt fyrstu mælingum var skjálftinn 4,1 að stærð og á 7 kílómetra dýpi.

Samkvæmt sjálfvirkum mælingum var skjálftinn staðsettur örskammt frá Nesjavallavirkjun, norður af fjallinu Hengli og austan við Dyrafjöll. Hann var því skammt suðvestur af Þingvallavatni, um það bil miðja vegu milli Reykjavíkur og Selfoss.

→ Lesa upprunaleg grein á Heimildin

Heimild: Heimildin

Deila Facebook X LinkedIn