Nýtt tímabundið hverfi rís í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær og fyrirtækið Stólpi hafa gert með sér samkomulag um uppbyggingu á nýju tímabundnu íbúðarhverfi við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði.

Nýtt tímabundið hverfi rís í Hafnarfirði
Mynd: John Bravar / Pexels

Hafnarfjarðarbær og Stólpi hafa náð samningum um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir 130 húsum með alls 260 íbúðum, hver íbúð 35 fermetrar að stærð.

Fyrirtækið Stólpi mun sjá um uppsetningu húsnæðisins og leigja það út til fyrirtækja fyrir starfsfólk þeirra. „Þetta er í raun og veru mjög góð lausn fyrir þessi fyrirtæki,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Þetta er líka gott fyrir okkur því að við reiknum með að það fækki íbúum í óleyfisíbúðum sem eru því miður of margar í atvinnuhverfum og við lítum þannig á að þetta verði öruggara og betra húsnæði fyrir þá sem þar búa,“ segir Orri.

Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar á síðari hluta næsta árs. Lóðarleigusamningar verða til 10 ára og verður hægt að fjarlægja einingarnar að þeim tíma loknum og nýta á annarri staðsetningu. Í framhaldi á Styrkás Fasteignir rétt til úthlutunar lóða á svæðinu til uppbyggingar varanlegs íbúðarhúsnæðis.

Orri segir að ekki hafi verið ráðist í sambærileg verkefni áður á Íslandi. „Ekki með þessum hætti og ekki af svona miklum metnaði. Þetta eru mjög flottar einingar og fallegar. Þetta er allt annað heldur en að raða upp gámum eins og hefur verið gert þar sem er svo sem ekki gengið frá neinu. Þarna verður gengið frá hlutunum og þetta verður bara snyrtilegt og fínt hverfi,“ segir Orri.

Húsnæðið verður einungis leigt til starfsfólks fyrirtækja, ekki til einstaklinga, og er ekki ætlað fjölskyldum eða til varanlegrar búsetu eldra fólks. Skipulagslýsing hverfisins á að liggja fyrir 1. október og verður deiliskipulag auglýst í febrúar á næsta ári.

Uppbyggingin fer fram í tveimur áföngum. Í fyrsta áfanga er stefnt að því að byggð verði 50 hús með 100 íbúðum og í öðrum áfanga er stefnt að því að...

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn