Nýtt Kvennaathvarf þéttsetið viku frá opnun

Nýtt og stærra Kvennaathvarf á höfuðborgarsvæðinu er þéttsetið aðeins viku eftir opnun. Húsnæðið var formlega opnað 3. september en tekið í notkun í síðustu viku. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að fjöldi þeirra sem leitað hafi til athvarfsins strax við opnun hafi k

Nýtt Kvennaathvarf þéttsetið viku frá opnun
Mynd: Jan van der Wolf / Pexels

Nýtt og stærra Kvennaathvarf á höfuðborgarsvæðinu er þéttsetið aðeins viku eftir opnun. Húsnæðið var formlega opnað 3. september en tekið í notkun í síðustu viku. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að fjöldi þeirra sem leitað hafi til athvarfsins strax við opnun hafi komið starfsfólki á óvart.

Um þessar mundir dvelja um 17 börn og 20 konur í athvarfinu. Þetta eru tölur sem samtökin hafa ekki séð áður, að sögn Lindu Dröfn. Tvær konur hafa verið fluttar í athvarfið á Akureyri til að létta á álagi á höfuðborgarsvæðinu.

Árlega leita um 500 konur til athvarfsins til að fá ráðgjöf og stuðning. Framkvæmdastýran bendir á að ný kynslóð sé farin að leita skjóls í athvarfinu.

→ Lesa á RÚV

Deila Facebook X LinkedIn