Nýtt innviðafélag á að veita vegfarendum valkosti

Nýtt ríkisfyrirtæki, Göng & brú, hefur kynnt áform sín um uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi. Fyrirtækið mun fjármagna, byggja og reka stór verkefni, meðal annars með veggjöldum, og leitar eftir fjárfestum úr einkageiranum til að hraða framkvæmdum.

Nýtt innviðafélag á að veita vegfarendum valkosti
Mynd: Kawan Santos / Pexels

Nýtt ríkisfyrirtæki, Göng & brú, sem ætlað er að hraða uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi, kynnti í dag áform sín fyrir innlendum og erlendum fjárfestum og verktökum á sérstökum kynningarfundi í Hörpu.

Fyrirtækið var stofnað með lögum sem Alþingi samþykkti í júní og fær það það hlutverk að fjármagna, byggja og reka stór samgöngumannvirki, meðal annars með veggjöldum.

Til þess að hægt sé að flýta slíkum verkefnum segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, að nauðsynlegt sé að fá fjárfesta úr einkageiranum inn í verkefnin – bæði innlenda og erlenda. Hann hafnar því að með þessu sé verið að einkavæða ákveðin samgöngumannvirki.

„Það finnst mér ekki, þetta er alltaf spurning um hvernig þú stendur að fjármögnun og ef ríkið ætlaði að fjármagna sérstaklega þessi stærri verkefni þá myndi það koma ofan á aðra lánsfjármögnunarþörf ríkisins sem er bara takmörk fyrir því hvað hægt er að gera,“ segir Daði.

Á fundinum flutti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarp um framtíðarsýn stjórnvalda fyrir fyrirtækið. Þá kynntu fjármála- og innviðaráðherra hlutverk sinna ráðuneyta og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræddi mikilvægi öflugra samgangna fyrir samkeppnishæfni og verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi.

Daði segir að merkja hafi mátt mikinn áhuga frá innlendum sem erlendum fjárfestum á að taka þátt í verkefninu. Aðspurður hvaða hag erlendir fjárfestar hafi af því að byggja upp samgöngumannvirki hér telur hann að þeir sem dæmi til sterks efnahags Íslands.

„Við erum með háar þjóðartekjur og höfum mikinn möguleika til að vaxa inn í framtíðina og ég held að fjárfestar sjái tækifæri í því,“ segir Daði sem nefnir einnig að fjármál íslenska ríkisins séu í betra lagi en hjá mörgum öðrum ríkjum.

„Opinberar skuldir eru ti

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn