Nýtt innflutningsgjald í bígerð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi til laga um innleiðingu á CBAM-reglugerð Evrópusambandsins.
Nýtt gjald verður lagt á innfluttar mengandi vörur utan EES-svæðisins. Þetta á við um áli, járni, stáli, sementi, áburði, vetni og rafmagni.
Hugsunin að baki kerfinu er sú að innflutt vara beri sambærilegan kolefniskostnað og sams konar vara sem framleidd er innan EES-svæðisins. Gjaldið er ekki lagt á sem tollur heldur með svokölluðum CBAM-vottorðum.
Heimild: mbl.is