Nýtt hringtorg á að rísa hratt við Akrafjallsveg

Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að Vegagerðin gangi til samninga við Borgarverk ehf. um byggingu nýs hringtorgs við Akrafjallsveg. Verkið er stórt og er áætlað að því ljúki í nóvember á næsta ári.

Nýtt hringtorg á að rísa hratt við Akrafjallsveg
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að Vegagerðin gangi til samninga við Borgarverk ehf. um byggingu nýs hringtorgs við Akrafjallsveg. Verkið er stórt og er í samstarfi Vegagerðarinnar og Akraneskaupstaðar.

Borgarverk ehf. bauð lægst í verkið, eða rúmlega 527 milljónir króna, sem samsvarar 85,5% af áætluðum kostnaði sem var rétt tæplega 617 milljónir króna. Hitt tilboðið kom frá Þrótti ehf. á Akranesi, sem bauð rétt rúmlega 594 milljónir króna, eða 96,3% af kostnaðaráætlun.

Verklok eru áætluð í nóvember á næsta ári. Akraneskaupstaður mun greiða um 22% af heildarkostnaði framkvæmdarinnar.

Hringtorgið mun tengja saman Akrafjallsveg og Akranesveg, auk þess að skapa nýja tengingu við Skógarhverfi um Lækjarskóga. Framkvæmdin felur í sér gerð hringtorgs, staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg og stígagerð að undirgöngunum.

Einnig verður ráðist í lagningu vatns- og hitaveitulagna, annarra fjarskiptalagna og rafstrengja, ásamt færslu núverandi háspennustrengja. Í verkinu er innifalin gerð fyllinga og fergingar, útlögn styrktar- og burðarlags, malbikun, niðurlögn ræsa og uppsetning vegriða.

Þá verður settur upp lýsingarbúnaður, skilti og annar vegbúnaður, auk yfirborðsmerkinga.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skagafréttir

Heimild: Skagafréttir

Deila Facebook X LinkedIn