Nýtt Geðsvið NLSH - kynningarfundur um skipulag í Fossvogi
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) boðar til opins fundar þriðjudaginn 1. september 2026, klukkan 17:00, þar sem kynnt verður fyrirhuguð deiliskipulagsbreyting Borgarspítala í Fossvogi. Breytingin felur í sér deiliskipulagningu á reit sunnan og austan núver
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) boðar til opins fundar þriðjudaginn 1. september 2026, klukkan 17:00, þar sem kynnt verður fyrirhuguð deiliskipulagsbreyting Borgarspítala í Fossvogi. Breytingin felur í sér deiliskipulagningu á reit sunnan og austan núverandi Borgarspítala/Landspítala í Fossvogi, sem er ætlaður fyrir nýtt geðsvið Landspítalans. Fundurinn verður haldinn í Víkinni, Víkingsheimilinu í Fossvogi, og er öllum opinn.
Á fundinum verður farið yfir áherslur og markmið Reykjavíkurborgar varðandi áformuð aðalskipulagsbreytingu, auk þess sem drög að deiliskipulagsbreytingu verða kynnt. Einnig verður fjallað um áherslur Geðráðs í tengslum við verkefnið. Tilgangur fundarins er að kynna áform um uppbyggingu nýs geðþjónustuhúss fyrir Landspítalann og nýtt deiliskipulag, auk þess að eiga samtal við íbúa og aðra hagsmunaaðila um verkefnið.
Fundarstjóri verður Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs NLSH. Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um þessar mikilvægu framkvæmdir sem munu hafa áhrif á skipulag og þjónustu í Fossvogi. Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á samráðsgáttinni undir heitinu Borgarspítalareitur.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjavíkurborg
Heimild: Reykjavíkurborg