Nýsköpun og auðlindanýting á Hellisheiði vekur áhuga gesta

Gestir fengu kynningu á starfsemi ON, Jarðhitagarðinum og tækifærum til að nýta jarðhitaauðlindir með hringrásarhugsun. Fyrirtækin Carbfix, Climeworks og VAXA Technologies voru heimsótt.

Nýsköpun og auðlindanýting á Hellisheiði vekur áhuga gesta
Mynd: Pexels / Julia Volk

Í heimsókninni fengu gestir kynningu á starfsemi ON, Jarðhitagarðinum og þeim tækifærum sem felast í því að nýta auðlindir jarðhitans með hringrásarhugsun að leiðarljósi. Bergur Sigfússon hjá Carbfix kynnti starfsemi fyrirtækisins og Carbfix-tæknina og hópurinn heimsótti borholu Carbfix á svæðinu. Hópurinn heimsótti einnig fyrirtækin Climeworks og VAXA Technologies og kynnti sér starfsemi þeirra á svæðinu.

Climeworks vinnur að beinni kolefnisbindingu úr andrúmslofti en VAXA Technologies nýtir endurnýjanlega orku og aðföng til framleiðslu á fæðubótarefnum og náttúrulegum litarefnum fyrir matvælaiðnað. Uppbygging Jarðhitagarðsins heldur áfram og er framtíðarsýnin að fjölga fyrirtækjum á svæðinu og auka enn frekar nýtingu auðlindanna. Jafnframt stendur til að þróa Glóð sem miðstöð nýsköpunar, rannsókna og samstarfs á svæðinu.

→ Lesa grein hjá ON

Heimild: on.is

Deila Facebook X LinkedIn