Nýr öryggisgæslustaður rís á Hólmsheiði fyrir ósakhæfa brotamenn
Ríkið hefur gert samkomulag við Reykjavíkurborg um lóð á Hólmsheiði þar sem reisa á nýjan öryggisgæslustað. Þar verður hægt að vista ósakhæfa einstaklinga sem hafa framið alvarleg afbrot, auk brotamanna sem hafa verið sakfelldir en þar sem fangelsisrefsing þykir ólíkleg til árangurs.
Samkomulagið var undirritað í fyrradag af Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiðu Björgu Hilmisdóttur, borgarstjóra í Reykjavík. Áætlað er að gæslustaðurinn geti hýst allt að sautján einstaklinga. Jafnframt verða þar skrifstofur Miðstöðvar um öryggisráðstafanir.
Sjá nánar: ruv.is