Nýr kafli hefst – Opnunarhátíð Bókasafns Hafnarfjarðar
Bókasafn Hafnarfjarðar hefur opnað nýtt húsnæði sitt í Firði, þar sem um 550 fermetrar eru í nýbyggingu við Strandgötu 26-30. Heildarstærð húsnæðisins er tæpir 1.700 fermetrar og er þetta hluti af mestu framkvæmdum sem átt hafa sér stað í miðbæ Hafna
Bókasafn Hafnarfjarðar hefur opnað nýtt húsnæði sitt í Firði, þar sem um 550 fermetrar eru í nýbyggingu við Strandgötu 26-30. Heildarstærð húsnæðisins er tæpir 1.700 fermetrar og er þetta hluti af mestu framkvæmdum sem átt hafa sér stað í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi. Bærinn fékk lyklavöldin að húsnæðinu fyrir aðeins þremur mánuðum síðan.
Formleg opnunarhátíð nýja bókasafnsins fer fram fimmtudaginn 13. ágúst milli klukkan 16 og 18. Safnið opnaði þó dyr sínar fyrst í morgun og eru allar bækur komnar í hillur. Nýja bókasafnið er hannað sem nútímasamkomuhús og býður upp á fjölbreytta aðstöðu, þar á meðal næðisrými, hljóðver, raddrými fyrir podcöst, fundarherbergi, hópaherbergi, samkomusal, barnahorn og lærdómsrými. Safnið er staðsett á annarri hæð í Firði.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hafnarfjarðarkaupstaður
Heimild: Hafnarfjarðarkaupstaður