Nýr eldskáli vígður í Vaglaskógi n.k.föstudag

Nýr eldskáli verður vígður í Vaglaskógi í Fnjóskadal næsta föstudag, 26. júní. Eldskálinn mun efla aðstöðu gesta í einum elsta þjóðskógi landsins með skjóli og samkomuaðstöðu.

Nýr eldskáli vígður í Vaglaskógi n.k.föstudag
Mynd: Braggi.is

Nýr eldskáli verður vígður í Vaglaskógi í Fnjóskadal föstudaginn 26. júní næstkomandi. Eldskálinn mun bæta aðstöðu gesta í skóginum allan ársins hring með snyrtingum, skjóli og samkomuaðstöðu.

Vaglaskógur er einn elsti þjóðskógur landsins og var friðaður fyrir beit árið 1909, en þá hóf Skógræktin starfsemi sína á Vöglum. Í dag er þar starfsstöð Lands og skógar, en starfsfólk vinnur þar að umhirðu og vinnslu afurða.

Í tilefni vígslunnar verður efnt til veislu í eldaskálanum frá kl. 14-16, þar sem boðið verður upp á ketilkaffi, kleinur, ástarpunga, sykurpúða og popp yfir eldi undir ljúfum tónum. Gestum gefst jafnframt kostur á að fræðast um helstu trjátegundir í skógrækt og þær afurðir og afþreyingu sem Vaglaskógur veitir. Skógurinn er vinsæll áfangastaður fyrir almenning og ferðafólk, en þúsundir heimsækja hann árlega til að njóta útiveru og nytja eins og berja- og sveppatínslu.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið

Heimild: Víkublaðið

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →