Nýr Arnarnesvegur opnaður milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar

Í dag klukkan tvö verður opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, á kaflanum milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Vegagerðin stendur að framkvæmdunum sem eru hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Vinna stendur enn yfir á svæðinu og er g

Nýr Arnarnesvegur opnaður milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar
Mynd: needpix.com (CC0)

Í dag klukkan tvö verður opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, á kaflanum milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Vegagerðin stendur að framkvæmdunum sem eru hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Vinna stendur enn yfir á svæðinu og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki um mánaðamót nóvember-desember. Um næstu mánaðamót er stefnt að opnun nýs hringtorgs við vegamót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar, sem mun tengja nýjan og eldri hluta Arnarnesvegar.

Um svipað leyti verður tvöföldun Breiðholtsbrautar við Vatnsendahvarf lokið og allar akreinar sem tengjast nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut opnaðar. Einnig er unnið að frágangi á veglýsingu, undirgöngum, malbikun göngu- og hjólastíga og stækkun tjarnar fyrir ofanvatn.

Verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Kópavogs, Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk.

→ Lesa upprunalegu fréttina á RÚV

Heimild: RÚV · Endursagt af Bragga

Deila Facebook X LinkedIn