Nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut hafnað

Nýr meirihluti í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar hafnaði tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut á fundi í gær. Tillagan er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og gerði ráð fyrir tveimur miðjusettum sérakreinum fyrir almennings

Nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut hafnað
Mynd: Pavel Danilyuk / Pexels

Nýr meirihluti í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar hafnaði tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut á fundi í gær. Tillagan er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og gerði ráð fyrir tveimur miðjusettum sérakreinum fyrir almenningssamgöngur og og göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmis.Deiliskipulag fyrir Suðurlandsbraut var bitbein í kosningabaráttunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar í síðasta mánuði og nýr meirihluti hét því að láta endurskoða skipulagið. Atvinnurekendur á svæðinu hafa áhyggjur af verulegri fækkun bílastæða með breytingunni.Í bókun meirihluta umhverfis- og skipulagsráðs eftir að tillagan var felld á fundi ráðsins í gær segir að ekki séu forsendur fyrir samþykkt tillögunnar. Hún þrengi að atvinnustarfsemi á svæðinu og byggi á forsendum samgönguuppbyggingar sem sm verði tekin til endurskoðunar á næstu vikum og mánuðum.„Suðurlandsbraut gegnir lykilhlutverki í samgöngukerfi Reykjavíkur og mikilvægt er að breytingar á göturýminu taki mið af heildarhagsmunum borgarbúa, umferðarflæði, atvinnustarfsemi og aðgengi. Því telur meirihlutinn rétt að endurmeta fyrirhugaðar framkvæmdir á þessum kafla í samhengi við endurskoðun Samgöngusáttmálans og framtíðarsýn nýrrar borgarstjórnar um þróun samgangna í Reykjavík áður en teknar eru ákvarðanir sem hafa varanleg áhrif á einn mikilvægasta samgönguás borgarinnar,“ segir í bókuninni.Eðlilegra hefði verið að aðlaga tillögunaFulltrúar Samfylkingar í umhverfis- og skipulagsráði létu bóka að þeir hörmuðu synjun tillögunnar og sögðu bráðnauðsynlegum samgöngubótum stefnt í uppnám með því að setja hönnunarferlið aftur á byrjunarreit.„Eðlilegri farvegur hefði verið að taka þær athugasemdir sem fram komu í auglýsingu deiliskipulagsins til skoðunar og aðlaga tillöguna útfrá þeim sjónarmiðum sem þar komu fram án þess að stefna markmiðum verkefnisins í tvísýnu.“Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →