Nýir stúdentagarðar við Norðurslóð boðnir út: 6700 m2 verkefni á Akureyri

Ljósmynd: cottonbro studio / Pexels
Ljósmynd: cottonbro studio / Pexels

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) hefur boðið út byggingu nýrra stúdentagarða við Norðurslóð 3-5-7 á háskólasvæðinu á Akureyri. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem nær yfir um 6.700 fermetra og mun hýsa 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi, auk stoðrýma og aðstöðu fyrir starfsfólk.

Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÉSTA, segir að verkefnið marki mikil tímamót fyrir háskólasamfélagið á Akureyri. „Með þessum nýju stúdentagörðum er ekki aðeins verið að bæta við húsnæði, heldur skapa umhverfi sem styður betur við námsárangur, félagslíf og líðan nemenda til framtíðar,“ segir Jóhannes. Hann bætir við að markmiðið hafi verið að byggja upp nútímalegt, hlýlegt og sjálfbært samfélag fyrir stúdenta þar sem gæði húsnæðis og nærumhverfis skipti miklu máli.

Mikill áhugi verktaka og áhersla á heildræna hönnun

Jóhannes greinir frá því að mikill áhugi hafi verið á útboðinu frá verktökum og að hann sé spenntur fyrir niðurstöðu tilboðanna sem verða opnuð í júní. Helstu verkþættir útboðsins fela í sér jarðvinnu, uppsteypu þriggja húsa sem verða 4 til 5 hæðir, auk alls frágangs að utan sem innan og lóðafrágangs. Hönnunarferlinu er nú lokið og segir Jóhannes að samstarfið við Nordic Office of Architecture og aðra hönnuði hafi verið farsælt og niðurstaðan endurspegli metnað og skýra framtíðarsýn.

„Eitt af því sem skiptir okkur miklu máli í þessu verkefni er að horfa ekki eingöngu á fermetrana sjálfa, heldur hvernig umhverfi við erum að skapa fyrir fólk sem er á mikilvægu tímabili í lífi sínu,“ segir Jóhannes. Hann leggur áherslu á að hönnunin styðji við öryggi, samfélag og tengslamyndun nemenda, og að húsnæðið verði hlýlegt, aðlaðandi og falli vel inn í umhverfið við Norðurslóð, um leið og það uppfylli kröfur nútímastúdenta. FÉSTA bindur miklar vonir við að nýju stúdentagarðarnir muni stuðla að nýju og öflugu stúdentasamfélagi á Akureyri.

Sjá nánar: vikubladid.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →