Ný og rúmgóð fræhöll tekin í noktun í Vaglaskógi

Ný og rúmgóð fræhöll hefur verið tekin í notkun í starfsstöð Lands og skógar í Vaglaskógi. Um er að ræða stálgrindarhús sem er 1.636 fermetrar að stærð, tæpir hundrað metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd. Húsið er klætt með sextán millimetra einan

Ný og rúmgóð fræhöll tekin í noktun í Vaglaskógi
Mynd: Braggi.is

Ný og rúmgóð fræhöll hefur verið tekin í notkun í starfsstöð Lands og skógar í Vaglaskógi. Um er að ræða stálgrindarhús sem er 1.636 fermetrar að stærð, tæpir hundrað metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd. Húsið er klætt með sextán millimetra einangrandi pólíkarbónat-plasti og er búið hefðbundinni hitastýringu og loftun með sjálfvirkum gluggum í mæni. Það er sérstaklega hannað til að þola mikil snjóþyngsli sem oft verða í Vaglaskógi.

Þetta nýja gróðurhús er viðbót við eldra hús sem hefur verið nýtt í kynbótastarf á vegum stofnunarinnar og forvera hennar undanfarna áratugi. Valgerður Jónsdóttir, teymisstjóri plöntu- og fræmála hjá Land og Skógi, segir að fræhöllin verði fyrst og fremst nýtt til framleiðslu á lerkiblendingnum Hrym á næstu árum. Hún bendir á að kynbætur gegni mikilvægu hlutverki í aðlögun skóga að loftslagsbreytingum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið

Heimild: Víkublaðið

Deila Facebook X LinkedIn