Ný og glæsileg áhorfendastúka vígð á Nesfiskvellinum
Ný 320 sæta áhorfendastúka var formlega opnuð við Nesfiskvöllinn í Garði síðastliðið föstudagskvöld. Opnunin fór fram við hátíðlega athöfn þar sem Hrönn Edvinsdóttir, heiðursfélagi Knattspyrnufélagsins Víðis, klippti á borðann.

Haukur Andrésson, forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, flutti ávarp og fagnaði þessum áfanga sem ber upp á sama ár og Knattspyrnufélagið Víðir fagnar 90 ára afmæli sínu. Haukur lagði áherslu á að mannvirkið muni bæta upplifun leikmanna og áhorfenda og styrkja þann góða anda sem ríkir á Nesfiskvellinum.
Verktakar framkvæmdarinnar, Bragi Guðmundsson og Gröfuþjónusta Tryggva Einars, fengu sérstakar þakkir fyrir vel unnið verk. Haukur þakkaði einnig Knattspyrnufélaginu Víði, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og Suðurnesjabæ fyrir samvinnu og eldmóð sem skóp þennan áfanga.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt