Ný innkeyrsla á að auðvelda aðkomu að Keflavíkurflugvelli
Ný innkeyrsla hefur verið opnuð við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli til að bæta aðkomu farþega. Framkvæmdum á bílastæðum við komusvæðið fer senn að ljúka.
Isavia hefur opnað nýja innkeyrslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli í þeim tilgangi að bæta aðkomu farþega. Framkvæmdir sem staðið hafa yfir á bílastæðum við komusvæðið síðustu mánuði eru nú á lokastigi.
Helstu gönguleiðir á svæðinu hafa verið yfirbyggðar til að verja farþega fyrir veðri og vindum á leið þeirra að og frá samgönguleiðum. Á næstu vikum verður framkvæmdum á komubílastæðunum að mestu lokið og nýjar og skýrar merkingar komnar upp.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig aðkoman er háttað eftir þessar breytingar.
Heimild: RÚV