Ný framtíð Akureyrarvallar: ALARK arkitektar hljóta fyrstu verðlaun
Arkitektastofan ALARK arkitektar hefur hlotið fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni Akureyrarbæjar um skipulag Akureyrarvallar og nærliggjandi svæðis. Samkeppnin, sem var haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, fékk alls 16 tillögur, þar af 15 gildar.
Markmið samkeppninnar var að kalla fram metnaðarfullar og raunhæfar hugmyndir að nýju miðbæjarumhverfi. Lögð var áhersla á sterka landslagshönnun, vandaðan arkitektúr og lifandi umgjörð fyrir búsetu og fjölbreytta starfsemi í hjarta bæjarins. Einnig var horft til þess að uppbygging miðsvæðisins styrkti núverandi innviði bæjarins og tengdi hverfahluta betur saman. Sérstök áhersla var lögð á aðgengis-, umferðar- og öryggismál, tengingar við stígakerfi Akureyrarbæjar, sögu Akureyrarvallar og kennileiti svæðisins, svo sem klappir og gróður.
Dómnefnd, undir forystu Höllu Bjarkar Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar Akureyrar og formanns skipulagsráðs, lagði jafnframt áherslu á umhverfissjónarmið og sjálfbærni við hönnun og efnisval. Þá var mikilvægt að tillögur myndu vinna með og draga úr áhrifum Glerárgötu.
Vinningstillagan og önnur verðlaun
Vinningstillagan, sem bar heitið Akureyrarvöllur, þótti samkvæmt dómnefnd heildstæð, sannfærandi og vel unnin. Dómnefndin tók sérstaklega fram hvernig tillagan vinnur með staðaranda og sögu svæðisins, styrkir tengsl við nærliggjandi hverfi og endurvekur Akureyrarvöll sem lifandi samkomustað.
Í öðru sæti varð tillagan Brúum hjarta Akureyrar eftir Marimo arkitekta, og í þriðja sæti Vallartorg eftir Teikna – Teiknistofu Arkitekta. Nánari umfjöllun um málið er væntanleg í Vikublaðinu.
Sjá nánar: vikubladid.is