Ný brú yfir Helgustaðaá komin á sinn stað
Ný brú úr forsteyptum einingum er komin á sinn stað yfir Helgustaðaá utan við þéttbýlið á Eskifirði, en verktakafyrirtækið Héraðsverk hefur unnið að endurnýjun mannvirkisins fyrir Vegagerðina síðan í september. Verkinu miðar vel og er áætlað að framk
Ný brú úr forsteyptum einingum er komin á sinn stað yfir Helgustaðaá utan við þéttbýlið á Eskifirði, en verktakafyrirtækið Héraðsverk hefur unnið að endurnýjun mannvirkisins fyrir Vegagerðina síðan í september. Verkinu miðar vel og er áætlað að framkvæmdum ljúki um miðjan desember.
Framkvæmdirnar hófust á því að steypa einingarnar áður en gamla einbreiða brúin frá árinu 1951 var rifin vegna mikilla alkalískemmda í steypuvirkinu. Nýju einingunum var komið fyrir í gamla brúarstæðinu í lok október og er gert ráð fyrir að fyllt verði að mannvirkinu á næstu dögum. Meðan á verkinu stendur hefur umferð verið beint um sérstakan bráðabirgðaveg með ræsi fram hjá vinnusvæðinu.
Samhliða brúarsmíðinni er unnið að endurbótum á veginum að brúnni á um 220 metra kafla. Vegagerðin beitir forsteyputækni í auknum mæli við brúargerð, en aðferðin styttir verktíma á verkstað ásamt því að auka öryggi og bæta gæðastýringu við mannvirkjagerðina.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt