Norðurþing efnir til nafnasamkeppni
Norðurþing hefur efnt til nafnasamkeppni vegna nýs frístunda- og félagsmiðstöðvarhúss á Húsavík. Íbúar eru hvattir til að senda inn hugmyndir að nafni á húsið og starfsemina sem þar fer fram.
Norðurþing hefur efnt til nafnasamkeppni vegna nýs frístunda- og félagsmiðstöðvarhúss á Húsavík. Framkvæmdir við húsnæðið við Borgarhólsskóla miða vel áfram og stefnt er að því að taka það í notkun í október.
Óskað er eftir hugmyndum að nafni á húsið sjálft, sem mun hýsa frístund og félagsmiðstöð, og einnig að nafni á frístundarstarfsemina sem þar fer fram.
Íbúar eru hvattir til að senda inn tillögur sem geta tengst sögu svæðisins, náttúru, menningu eða samveru í Norðurþingi. Stjórnendur velferðarsviðs munu velja úr innsendum tillögum og nemendur Borgarhólsskóla og Framhaldsskólans á Húsavík munu síðan kjósa um endanlegt nafn.
Lögð er áhersla á skapandi hugmyndir sem höfða til barna og ungmenna og endurspegla tilgang og hlutverk hússins. Hægt er að senda inn tillögur til og með 5. október næstkomandi.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Norðurþing
Heimild: Norðurþing