Norðmenn prófa nýjar vegmerkingar til að fækka vélhjólaslysum
Norska vegagerðin, Statens vegvesen, er nú að prófa nýjar Vegmerkingar á malbiki sem ætlað er að fækka vélhjólaslysum. Merkingarnar eru upprunnar í Austurríki þar sem þær hafa, samkvæmt umferðarráði Austurríkis (KFV), fækkað vélhjólaslysum í Týról um 80 prósent á tveimur árum.
Nýju merkingarnar eru í formi hringja við akreinaskil í beygjum, en flest vélhjólaslys verða í beygjum, sérstaklega vinstribeygjum, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Statens vegvesen hefur valið að halda staðsetningu tilraunarinnar leyndri til að tryggja mælanlegan árangur.
Á árunum 2018 til 2024 létust að meðaltali átján vélhjólaökumenn árlega í slysum á norskum vegum, oftast í beygjum. Jürgen Funk, vélhjólamaður sem NRK ræddi við, segir að dæmigert slys verði þegar knapi fer of hratt inn í beygju, hemlar og hjólið réttir sig upp, sem leiðir til þess að það fer út af veginum. Steinar Gundersen, sem hefur rúma hálfa öld af reynslu á vélhjólum, fagnar tilrauninni og segir jákvætt að eitthvað sé gert.
Jan Harry Svendsen, talsmaður norska bifreiðaeigendafélagsins NAF, bindur miklar vonir við tilraunina og segir að markmiðið sé að koma í veg fyrir slys áður en þau gerast, öfugt við fyrri áherslur á aðstoð eftir slys.
Sjá nánar: mbl.is