Norðlendingar bætast í kapphlaupið um Tækniskólann

Bæði Akureyri og Norðurþing hafa lýst yfir áhuga á að fá Tækniskólann norður. Þetta eru þá sveitarfélög númer fjögur og fimm sem gera hosur sínar grænar fyrir skólanum. Skólinn ætlaði að byggja í Hafnarfirði en eftir að í ljós kom að bærinn gat ekki

Norðlendingar bætast í kapphlaupið um Tækniskólann
Mynd: Mike van Schoonderwalt / Pexels

Bæði Akureyri og Norðurþing hafa lýst yfir áhuga á að fá Tækniskólann norður. Þetta eru þá sveitarfélög númer fjögur og fimm sem gera hosur sínar grænar fyrir skólanum. Skólinn ætlaði að byggja í Hafnarfirði en eftir að í ljós kom að bærinn gat ekki staðið við skuldbindingar sínar um að útvega lóð, hafa Mosfellsbær, Reykjavík og Reykjanesbær sýnt áhuga á að fá skólann til sín.Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, tjáði sig um málið á Facebook-síðu sinni í gær. Þar segir hún:„Af hverju ekki að byggja upp Tækniskólann á Akureyri og skapa öflugan vettvang fyrir tæknimenntun á háskólastigi á landsbyggðinni? Eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir. Það myndi færa menntun, þekkingu, störf og tækifæri út á land. Alvöru byggðastefna í einni sterkri aðgerð. Við hér í Akureyrarbæ erum alveg til í það samtal og ég veit að við myndum finna Tækniskólanum góðan stað í okkar öfluga sveitarfélagi.“Þá tengir hún uppbyggingu Tækniskólans á Akureyri við tillögur starfshóps dómsmálaráðherra um fækkun þingmanna í Norðausturkjördæmi. „Þegar stjórnsýslan er að mestu í Reykjavík, stofnanir ríkisins þar, þjónustan þar og sífellt fleiri störf þar, þá er það ekki alveg augljóst að næsta skref í eflingu byggðar um allt land sé að auka enn vægi höfuðborgarsvæðisins á Alþingi. En það er alveg hægt að snúa þessari umræðu við. Ef ríkisstjórnin vill sýna í verki að hún sé ekki ríkisstjórn höfuðborgarsvæðisins heldur ríkisstjórn alls landsins, þá eru tækifærin víða. Þau blasa við.“Norðurþing býður ódýrari lóðir en höfuðborgarsvæðiðBergþór Bjarnason, sveitarstjóri í Norðurþingi, tók í svipaðan streng þegar fréttastofa náði af honum tali í dag. Hann segir fullt af tækifærum vera í Norðurþingi og Húsavík vera ákjósanlegan stað fyrir uppbyggingu skólans. Þá segir hann einnig að þeir bjóði töluvert ódýrari lóðir en í Reykjavík:„Við teljum okkur hafa margt upp á að bjóða. Það væri þá alvöru byggðastefna í verki ef að stjórnvöld væru tilbúin til viðræðu um það. Til að verja byggðirnar þurfum við bara meiri þjónustu út á land. Við höfum nægar lóðir og ef þarf að skipuleggja, sameina eða stækka lóðir er það lítið mál. Klárlega á betri kjörum en á höfuðborgarsvæðinu.“Nánar er rætt við Bergþór í spilaranum hér að neðan.Bæjarstjórinn á Akureyri og sveitarstjórinn í Norðurþingi hafa báðir lýst yfir vilja að fá Tækniskólann norður yfir heiðar. Sveitarfélögin segjast hafa upp á margt að bjóða fyrir skólann, svo sem ódýrar lóðir.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn