Nónhæð: Jarðvinna hafin við síðasta húsið
Jarðvinna er hafin við þriðja og síðasta fjölbýlishúsið á Nónhæð, á mörkum Kópavogs og Garðabæjar. Kristján Snorrason húsasmíðameistari, sem stendur að baki verkefninu með fjölskyldufyrirtækjum sínum Nónhæð ehf. og KS verktakar ehf., áætlar að íbúðirnar verði tilbúnar til sölu í ársbyrjun 2029, eftir um tveggja og hálfs árs seinkun á framkvæmdum.
Alls eru 140 íbúðir í verkefninu, en 74 hafa þegar verið byggðar og 13 eru langt komnar í lokaáfanga annars hússins. Þegar þessum áfanga er lokið verða 87 íbúðir tilbúnar, og munu 53 bætast við með þriðja húsinu. Verkefnið á sér langan aðdraganda en Kristján keypti lóðina árið 2002. Miklir jarðvegsflutningar hafa einkennt framkvæmdirnar, en áætlað er að um 160-170 þúsund rúmmetrar af jarðvegi verði fluttir þegar upp er staðið, þar af 35-40 þúsund rúmmetrar vegna lokaáfangans.
Kristján Snorrason hefur reynslu af byggingariðnaði í gegnum margar efnahagssveiflur og segir það mikilvægt að gera ráð fyrir háum fjármagnskostnaði og skipuleggja vel. Hann bendir á að þótt vaxtakostnaður sé hár og vinnulaun hafi hækkað, hafi efnisverð staðið í stað. Hann er bjartsýnn á markaðinn og telur að þrátt fyrir offramboð í vissum hverfum sé salan betri en af er látið, sérstaklega ef hönnun íbúða er vel ígrunduð. Á Nónhæð er áhersla lögð á næg bílastæði, en 1,5 stæði eru á hverja íbúð.
Sjá nánar: mbl.is