Framkvæmdir við Grensásdeild á lokametrunum
Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar eru nú á lokametrunum, en unnið er að lokaúttektum og gangsetningu tæknikerfa samhliða síðustu frágangsverkefnum. Lóða…
Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar eru nú á lokametrunum, en unnið er að lokaúttektum og gangsetningu tæknikerfa samhliða síðustu frágangsverkefnum. Lóðafrágangur stendur einnig yfir á hluta svæðisins. Megináherslan er á að sannreyna virkni tæknikerfa og tryggja að þau starfi rétt saman, en þetta er mikilvægur þáttur í undirbúningi afhendingar til að staðfesta að húsnæðið og búnaður þess uppfylli kröfur um öryggi, gæði og rekstrarhæfni. Kristinn Jakobsson, verkefnastjóri hjá NLSH, segir að vinnan snúist nú að mestu um lokaúttektir, gangsetningu kerfa og að ljúka þeim frágangsverkefnum sem eftir standa. Þessi lokaáfangi krefst náinnar samvinnu verktaka, hönnuða og rekstraraðila til að tryggja að allt sé tilbúið þegar húsnæðið verður tekið í notkun. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum á næstu mánuðum.
Upprunaleg frétt
Nýr Landspítali — nlsh.is