Framkvæmdir í meðferðarkjarna í ágúst

Framkvæmdir við innanhússfrágang í Meðferðarkjarnanum á Nýjum Landspítala eru í fullum gangi og ganga vel. Sérstaklega er unnið á legudeildum í öllum fjórum …

Framkvæmdir í meðferðarkjarna í ágúst

Framkvæmdir við innanhússfrágang í Meðferðarkjarnanum á Nýjum Landspítala eru í fullum gangi og ganga vel. Sérstaklega er unnið á legudeildum í öllum fjórum stöngum hússins. Í stöngum eitt og tvö er verktaki ríflega hálfnaður með verkefnið, þar sem flísalögn, dúklögn, uppsetning kerfislofta og málun eru í fullum gangi. Í stöngum fjögur og fimm er verið að setja upp veggi ásamt pípu- og raflögnum, en áætluð verklok eru í janúar 2028. Eftir sumarleyfistímann hefur starfsemi á verkstað Meðferðarkjarnans tekið verulegan kipp, með fjölgun starfsmanna og verktaka. Vinna við innanhússfrágang fer nú fram á flestum hæðum hússins samtímis, þar á meðal ílögn og uppsetning innveggja. Tæknikerfi, þar á meðal á gjörgæsludeild, eru komin vel af stað og vinna við lagnir og tæknibúnað í veggjum gengur samkvæmt áætlun. Samvinna milli verktaka, ráðgjafa og verkefnastjóra er lykilatriði á þessu stigi framkvæmdarinnar þar sem margir verkþættir fara fram samtímis.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn