Staða framkvæmda við rannsóknahús

Framkvæmdir við rannsóknahúsið á svæði Nýs Landspítala ganga vel og er uppsetning útveggjakerfis komin vel á veg, eða um 70%. Samhliða því er hafin uppsetnin…

Staða framkvæmda við rannsóknahús

Framkvæmdir við rannsóknahúsið á svæði Nýs Landspítala ganga vel og er uppsetning útveggjakerfis komin vel á veg, eða um 70%. Samhliða því er hafin uppsetning stálvirkis fyrir þakglugga í miðrými hússins, sem er mikilvægur áfangi í lokun hússins. Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH, staðfestir að unnið sé að þakfrágangi og uppsetningu regnvatnslagna. Á næstu vikum verður áfram lögð áhersla á að ljúka uppsetningu útveggjakerfis, frágangi þaka og regnvatnslagna, auk vinnu við stálvirki þakgluggans. Þessir verkþættir eru lykilatriði til að tryggja að húsið verði vatnshelt samkvæmt áætlun. Undirbúningur vegna útboða á innri frágangi og tæknikerfum er einnig í fullum gangi, til að tryggja hnökralausa framvindu þegar húsinu hefur verið lokað.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →