Eykt með lægsta tilboð á rannsóknahúsi Nýs Landspítala

Nýverið voru opnuð tilboð í innanhússfrágang rannsóknahúss Nýs Landspítala við Hringbraut. Eykt ehf. skilaði lægsta tilboðinu, sem nam 8.099 milljónum króna …

Eykt með lægsta tilboð á rannsóknahúsi Nýs Landspítala

Nýverið voru opnuð tilboð í innanhússfrágang rannsóknahúss Nýs Landspítala við Hringbraut. Eykt ehf. skilaði lægsta tilboðinu, sem nam 8.099 milljónum króna án vsk., en kostnaðaráætlun verkaupa var 9.023 milljónir króna. Rannsóknahúsið, sem er 19 þúsund fermetrar að stærð, er nú þegar steypt upp og stendur yfir lokafrágangur á útveggjum og þaki. Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf., lýsti yfir ánægju sinni með metnaðarfull tilboð verktaka í áframhaldandi byggingu rannsóknahússins. NLSH mun næstu daga fara yfir frávik frá kostnaðaráætlun og önnur formskilyrði sem bjóðendur þurfa að uppfylla. Þrír af bjóðendunum hafa áður tekið þátt í stórum verkefnum á vegum NLSH og þekkja vel til starfsvæðisins.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn