Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands ganga vel og er ytra byrði byggingarinnar að taka á sig endanlega mynd. Lokið hefur verið við gle…

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands ganga vel og er ytra byrði byggingarinnar að taka á sig endanlega mynd. Lokið hefur verið við glerjun austurhliðar og suðurhliðar, þar sem klæðning er einnig langt á veg komin. Uppsetning á listum/prófílum er hafin, sem gefur húsinu meira endanlegt útlit. Á efstu hæð er uppsetning samlokueininga að mestu lokið og vinna við frágang útveggja er í fullum gangi, þar á meðal uppsetning flasninga. Á fjórðu hæð er unnið að pappalögn þaks, sem er mikilvægur áfangi í vatnsheldni hússins. Jóhann Gunnar Ragnarsson, verkefnastjóri hjá NLSH, staðfestir að framkvæmdin hafi miðað mjög vel áfram og að áhersla verði áfram lögð á frágang útveggja og glerveggjakerfa á næstu vikum.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn