Staða framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk)

Framkvæmdir við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) eru í fullum gangi, en nýtt bílastæði er á lokastigi og stefnt er á malbikun á næstu vikum. Þegar því verki er l…

Staða framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk)

Framkvæmdir við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) eru í fullum gangi, en nýtt bílastæði er á lokastigi og stefnt er á malbikun á næstu vikum. Þegar því verki er lokið hefst jarðvinna í grunni á núverandi bílastæði sunnan sjúkrahússins. Þessi jarðvinna er undanfari byggingar á 13.600 m² nýbyggingu sem mun tengjast núverandi húsnæði SAk með tengigangi. Í nýbyggingunni verður komið upp nútímalegri aðstöðu fyrir skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur og tvær öryggiseiningar fyrir geðgjörgæslu), ásamt stoðrýmum og glæsilegri dag- og göngudeild geðdeildar. Gunnar Líndal Sigurðsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH, staðfestir þessa framvindu.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn