Útboð vegna innanhússfrágangs í rannsóknahúsi

Nýr Landspítali hefur auglýst útboð vegna innanhússfrágangs í rannsóknahúsinu við Hringbraut, sem er mikilvægur áfangi í uppbyggingu spítalans. Rannsóknahúsi…

Útboð vegna innanhússfrágangs í rannsóknahúsi

Nýr Landspítali hefur auglýst útboð vegna innanhússfrágangs í rannsóknahúsinu við Hringbraut, sem er mikilvægur áfangi í uppbyggingu spítalans. Rannsóknahúsið er 19 þúsund fermetrar, fimm hæða bygging með kjallara og tengist öðrum byggingum með neðanjarðargöngum. Útboðið nær yfir fjölbreytta og umfangsmikla verkþætti, þar á meðal lagnavinnu, rafkerfi, innréttingar og almennan innanhússfrágang. Meðal helstu magntalna má nefna 2.500 metra af fráveitulögnum, 16.000 metra af neysluvatnslögnum og 25.600 metra af hitalögnum. Rafmagnsvinna er einnig umfangsmikil með 9.000 metrum af raflagnastigum, 23.500 metrum af pípum og 95.200 metrum af lágspennustrengjum. Innanhússfrágangur felur í sér 14.000 fermetra af gólfílögn, 2.400 fermetra af flísalögn, 10.400 fermetra af gólfdúk, 14.900 fermetra af gifsveggjum og 62.000 fermetra af málun. Allar nánari upplýsingar eru aðgengilegar á útboðsvef NLSH.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →