Nýtt Geðhús - kynningarfundur um skipulag í Fossvogi

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) boðar til íbúafundar þriðjudaginn 1. september 2026, kl. 17:00 í Víkingsheimilinu í Fossvogi, til að kynna fyrirhugaða deiliskipu…

Nýtt Geðhús - kynningarfundur um skipulag í Fossvogi

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) boðar til íbúafundar þriðjudaginn 1. september 2026, kl. 17:00 í Víkingsheimilinu í Fossvogi, til að kynna fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu Borgarspítala. Breytingin felur í sér að reitur sunnan og austan núverandi Borgarspítala/Landspítala í Fossvogi verði deiliskipulagður fyrir nýtt geðsvið Landspítalans. Á dagskrá fundarins eru kynningar á áherslum og markmiðum Reykjavíkurborgar varðandi aðalskipulagsbreytinguna, drög að deiliskipulagsbreytingu frá Kanon arkitektum og áherslur Geðráðs. Tilgangur fundarins er að kynna áform um uppbyggingu á nýju geðþjónustuhúsi Landspítala og nýtt deiliskipulag, auk þess að eiga samtal við íbúa og aðra hagsmunaaðila um verkefnið. Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs NLSH, mun stýra fundinum.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn