Framkvæmdir við rannsóknahús

Framkvæmdir við rannsóknahús Nýs Landspítala ganga vel og mikilvægir áfangar hafa náðst. Lokið hefur verið við uppsetningu stálvirkis fyrir þakgluggann yfir …

Framkvæmdir við rannsóknahús

Framkvæmdir við rannsóknahús Nýs Landspítala ganga vel og mikilvægir áfangar hafa náðst. Lokið hefur verið við uppsetningu stálvirkis fyrir þakgluggann yfir miðrýminu og nú stendur yfir uppsetning handriða. Þakfrágangur gengur vel og vesturhluti hússins er að mestu fullfrágenginn hvað þann verkþátt varðar. Einnig hefur uppsetningu utanhússklæðningar verið lokið á öllu rannsóknahúsinu og frárennslislagnir eru að mestu komnar upp. Áfram er unnið að frágangi þaka og öðrum verkþáttum sem tryggja vatnsheldni byggingarinnar. Þessir áfangar skapa forsendur fyrir auknum innanhússframkvæmdum á næstu misserum. Jafnframt stendur nú yfir útboð vegna innanhússfrágangs rannsóknahússins og opnun tilboða verður í september. Þetta útboð markar mikilvægan áfanga í áframhaldandi uppbyggingu hússins, sem er hluti af stærra verkefni Nýs Landspítala.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn