Ytra byrði á húsi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands tekur á sig mynd
Framkvæmdir við nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands á Landspítalasvæðinu ganga samkvæmt áætlun og er ytra byrði byggingarinnar óðum að taka á si…
Framkvæmdir við nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands á Landspítalasvæðinu ganga samkvæmt áætlun og er ytra byrði byggingarinnar óðum að taka á sig endanlega mynd. Umfangsmikil vinna stendur yfir við uppsetningu og frágang glerveggjakerfis auk þess sem uppsetning á áberandi steinklæðningu við anddyri hússins er hafin. Samhliða vinnu við útveggi er unnið að pappalögn og öðrum frágangi á þökum fjórðu og fimmtu hæðar. Þá er uppbygging á gólfum ljósgarða hússins einnig hafin, en að sögn forsvarsmanna Nýs Landspítala er unnið að fjölbreyttum verkþáttum víðs vegar um bygginguna samtímis.
Upprunaleg frétt
Nýr Landspítali — nlsh.is