Staða framkvæmda í ágúst við Hús Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands ganga vel þrátt fyrir sumarfrí. Lokið hefur verið við að reisa stálvirki fimmtu hæðar og uppsetni…

Staða framkvæmda í ágúst við Hús Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands ganga vel þrátt fyrir sumarfrí. Lokið hefur verið við að reisa stálvirki fimmtu hæðar og uppsetning samlokueininga er langt komin. Uppsetning glerveggjakerfis er hafin á öllum hliðum, þar sem glerjun og einangrun er lengst komin á suðurhlið, en einnig er hafin glerjun á austur- og norðurhlið. Jóhann Gunnar Ragnarsson, verkefnastjóri hjá NLSH, segir að framundan sé áframhaldandi uppsetning og frágangur á glerveggjakerfi ásamt samlokueiningum á fimmtu hæð. Þessi framvinda sýnir stöðugan gang í byggingu þessa mikilvæga hluta Nýs Landspítala.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn