Markaðskönnun - RFI Rafrænt stjórnunar- og eftirlitskerfi fyrir Ísótópastofu

Nýr Landspítali (NLSH) hefur hafið markaðskönnun, svokallað RFI (Request for Information), til að afla upplýsinga um rafrænt stjórnunar- og eftirlitskerfi fy…

Markaðskönnun - RFI Rafrænt stjórnunar- og eftirlitskerfi fyrir Ísótópastofu

Nýr Landspítali (NLSH) hefur hafið markaðskönnun, svokallað RFI (Request for Information), til að afla upplýsinga um rafrænt stjórnunar- og eftirlitskerfi fyrir Ísótópastofu Landspítalans. Kerfið er ætlað til upplýsingastjórnunar og ferlastýringar í geislavirkri lyfjaframleiðslu (Radiopharmacy Information and Process Management) fyrir kjarnlækningadeildina. Þessi markaðskönnun er mikilvægur liður í undirbúningi fyrir uppsetningu hugbúnaðarins í meðferðarkjarna, sem er áætlað að verði tekinn í notkun á árunum 2029–2030. NLSH leitar eftir upplýsingum frá hæfum birgjum um lausnir sem geta mætt ströngum kröfum um öryggi og nákvæmni í framleiðslu geislavirkra lyfja. Nánari upplýsingar um verkefnið eru aðgengilegar á utbodsvefur.is.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn