Vinnustofa um lokað lyfjaferli og lyfjaþjónustu í meðferðarkjarna

Nýverið var haldin vinnustofa um lokað lyfjaferli (CLMM) og framtíðarfyrirkomulag lyfjaþjónustu í meðferðarkjarna Nýs Landspítala. Markmiðið var að skapa sam…

Vinnustofa um lokað lyfjaferli og lyfjaþjónustu í meðferðarkjarna

Nýverið var haldin vinnustofa um lokað lyfjaferli (CLMM) og framtíðarfyrirkomulag lyfjaþjónustu í meðferðarkjarna Nýs Landspítala. Markmiðið var að skapa sameiginlegan skilning á fyrirhugaðri lausn, yfirfara forsendur fyrir búnaði og rýmisskipulagi, og hefja vinnu við að skilgreina framtíðarferla fyrir lyfjameðferð og lyfjalógistík. Á vinnustofunni komu saman fulltrúar frá NLSH, Landspítala og COWI til að ræða hugmyndafræði CLMM og mögulegar útfærslur innan lyfjaþjónustu og legudeilda, ásamt vali á sjálfvirkum búnaði fyrir stakskömmtun og afgreiðslu lyfja. Mikil áhersla var lögð á að kortleggja þróun núverandi verklags yfir í nýtt verklag og skilgreina næstu verkefni í innleiðingu nútímalegs og öruggs lyfjaferlis. Þetta skref er mikilvægt til að auka öryggi sjúklinga, bæta rekjanleika lyfja og skilvirkni verkferla í meðferðarkjarnanum.

Upprunaleg frétt

Nýr Landspítali — nlsh.is

→ Lesa alla greinina á nlsh.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →