Niðurstaðna um fýsileika gangagerðar að vænta fyrir árslok

„Kjarnaborhola á Landeyjasandi hefur gefið nytsamlegar upplýsingar um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina,“ segir Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi, í samtali við vefmiðilinn Tígul. Völuberg hefur umsjón með kjar

Niðurstaðna um fýsileika gangagerðar að vænta fyrir árslok
Mynd: Magda Ehlers / Pexels

„Kjarnaborhola á Landeyjasandi hefur gefið nytsamlegar upplýsingar um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina,“ segir Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi, í samtali við vefmiðilinn Tígul. Völuberg hefur umsjón með kjarnaborununum fyrir Eyjagöng.Kjarnaborun lauk við bæinn Kross á Landeyjarsandi á laugardag. Þannig hefur náðst að safna öllum gögnum sem þarf til að rannsaka heildstætt hve aðlaðandi er að leggja göng milli lands og Eyja.Benedikt segir jarðfræðilegar aðstæður ekki mjög frábrugðnar þeim í Vestmannaeyjum. Þar segir Benedikt vera nokkuð þykka móbergsmyndun, sem sé að mestu uppbyggð af sprungnu basalti og liggi ofan á mun þéttara setbergi.Fyrr í sumar lauk kjarnaborunum við Klifið í Vestmannaeyjum ásamt hafsbotns- og hljóðendurvarpsmælingum milli lands og Eyja. Á næstu vikum verður unnin jarðfræðiskýrsla um þær rannsóknir allar.Heildarkostnaðurinn við borunina nemur um 200 milljónum króna. Það fjármagn fæst frá sveitarfélögum í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi ásamt fyrirtækjum um land allt, sagði Haraldur Pálsson, framvæmdastjóri Eyjaganga ehf., fyrr í sumar.Verkfræðistofan Efla og Völuberg munu svo á næstu mánuðum greina gögnin í sameiningu sem ætlað er fyrir árslok að varpa ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur jarðgangagerðar. Norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult vinnur einnig sjálfstætt fýsileika- og kostnaðarmat.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn