Niðurstaðan felur ekki í sér stuðning við óbreytt ástand

Samtök iðnaðarins kalla eftir því að efnahagsmál verði sett í algjöran forgang og að stjórnvöld ráðist í umbætur til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að niðurstaðan sem liggur fyrir feli ekki í sér stuðning við óbreytt ástand.

Niðurstaðan felur ekki í sér stuðning við óbreytt ástand
Mynd: Jan van der Wolf / Pexels

Samtök iðnaðarins kalla eftir því að efnahagsmál verði sett í algjöran forgang. Framkvæmdastjóri samtakanna, Sigurður Hannesson, segir að niðurstaðan sem liggur fyrir feli ekki í sér stuðning við óbreytt ástand.

Sigurður bendir á að stjórnvöld þurfi nú að ráðast í umbætur til að ná niður verðbólgu og vöxtum, tryggja næga raforku, hraða uppbyggingu innviða og bæta skilyrði fyrir fjárfestingar og nýsköpun. Til þess þurfi þjóðarsátt stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.

„Samtalið síðustu vikur og mánuði hefur dregið það skýrt fram að það er ákall í samfélaginu, bæði frá landsmönnum og fyrirtækjum, um stöðugleika og aukinn fyrirsjáanleika og því verða stjórnvöld að mæta tafarlaust. Það þarf að taka efnahagsmálin miklu fastari tökum og setja samkeppnishæfni í algjöran forgang,“ segir Sigurður.

Þrátt fyrir niðurstöðu úr þjóðaratkvæðagreiðslu segir Sigurður Evrópu áfram vera mikilvægasta markaðssvæði íslensks iðnaðar og EES-samninginn mikilvægasta viðskiptasamning Íslands. Því sé mikilvægt að stjórnvöld móti skýra stefnu um hvernig tryggja eigi hagsmuni Íslands innan EES.

„Það þarf að fara í aðgerðir til þess að einfalda regluverk. Það þarf að styðja EES-samninginn núna þegar að þessi niðurstaða liggur fyrir. Við þurfum að sjá umbætur í menntamálum, meiri fyrirsjáanleika til dæmis fyrir hugverkaiðnað sem er vaxandi stoð og gæti orðið verðmætasta útflutningsstoðin í lok áratugarins.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn