Nálægð við flugvöll og höfn skapar tækifæri í Helguvík
Mikil tækifæri skapast í Helguvík þegar lokið verður við niðurrif kísilverksmiðju í haust. Nálægð við flugvöll og höfn er talin lykilatriði í þessari uppbyggingu.
Mikil atvinnutækifæri eru að skapast í Helguvík eftir að lokið verður við niðurrif kísilverksmiðjunnar í haust. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Vilhjálmur Árnason, segir nálægð við flugvöll og höfn gegna lykilhlutverki í þessari þróun. Hann leggur áherslu á að mengandi iðnaður verði ekki fluttur á svæðið, þar sem slík starfsemi sé liðin tíð.
„Þetta gengur bara mjög vel fyrst að svona fór að þessi starfsemi gekk ekki upp á sínum tíma. Framkvæmdir ganga vel núna í að rífa þetta niður og búa til pláss fyrir nýja atvinnustarfsemi þannig að við getum sagt að Helguvík taki opnum faðmi á móti nýjum atvinnutækifærum,“ segir Vilhjálmur. Aðeins tólf ár eru liðin frá því fyrsta skóflustunga var tekin að kísilverinu United Silicon, sem átti að marka upphaf atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. Starfsemi kísilversins var stöðvuð árið 2017 vegna mengunar sem barst í íbúabyggð. Úrbætur sem fyrirtækinu var gert að ráðast í kostuðu um þrjá milljarða króna og í kjölfarið var félagið sett í þrot.
„Já hér náttúrulega voru áform um og fór af stað mikill og stór vinnustaður sem þurfti mikið rafmagn þannig að þessi lóð býr svo vel að því að hafa nýtt og öflugt spennuvirki inni á lóðinni hjá sér. Þannig að það þarf ekki einu sinni framlengingarsnúru, bara að stinga í samband. Svo erum við að fá Suðurnesjalínu tvö og þá væri gott að hafa allt að 200 megavatta spennuvirki inni á lóðinni,“ segir Vilhjálmur. Ýmislegt er fyrirhugað í Helguvík þegar niðurrifi kísilverksmiðjunnar lýkur í haust. Vilhjálmur segir bílaleigur, iðnaðar- og pípulagningarfyrirtæki þegar byggja upp starfsemi á staðnum ásamt jarðaberjarækt. NATO hyggst stækka olíubirgðastöð sína á svæðinu. Helguvík er talinn kjörinn vettvangur fyrir matvælaiðnað og gagnaver vegna góðrar innviðauppbyggingar og aðgangs að orku.
Heimild: RÚV