Munur á mati og söluverði veldur tregðu á markaði

Fast­eigna­mat sem endur­speglar ekki lengur raun­veru­lega stöðu á markaði getur hægt á fast­eigna­við­skiptum og gert selj­endum erfiðara fyrir að lækka ásett verð.

Munur á mati og söluverði veldur tregðu á markaði
Mynd: Arian Fernandez / Pexels

Fast­eigna­mat hefur áhrif á al­menning, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það skiptir máli sem skatt­stofn og viðmið fyrir lána­stofnanir, en hefur einnig hug­læg áhrif.

Út­tekt bendir til þess að þriðjungur full­búinna íbúða í fjöl­býli á höfuð­borgar­svæðinu hafi selst undir fast­eigna­mati á öðrum árs­fjórðungi. Í júní einum fór hlut­fallið í 36,2%. Þegar markaðurinn kólnar getur fast­eigna­mat, sem byggir að hluta á eldri markaðs­upp­lýsingum, farið að vinna gegn eðli­legri verð­myndun. Selj­endur horfi þá til opin­bers mats sem gefi til kynna hærra verð, á sama tíma og raun­veru­leg eftir­spurn kalli á lægra ásett verð.

→ Lesa á vb.is

Heimild: vb.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →