Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð grjótgildru við Holtastöð

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð grjótgildru við skólpdælustöðina Holtastöð, með skilafresti 19. október 2026.

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð grjótgildru við Holtastöð
Mynd: Timothy Huliselan / Pexels

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð grjótgildru við skólpdælustöðina Holtastöð. Útboðsnúmer er 2026091164.

Um er að ræða að útbúa nýja grjótgildru framan við skólpdælustöðina Holtastöð. Helstu verkþættir og magntölur eru: Gröftur 180 m³, fylling (burðarhæf) 45 m³, steypumót 88 m², bendistál 2.700 kg, steypa 17 m³ og færsla háspennustrengs 10 m.

Verkinu skal vera lokið 15. janúar 2027.

Útboðsgögn verða eingöngu afhent rafrænt frá og með kl. 12:00 föstudaginn 2. október 2026. Beiðnir um útboðsgögn má senda á netfangið mos@mos.is.

Tilboðum skal skilað rafrænt á netfangið mos@mos.is eigi síðar en kl. 11:00 mánudaginn 19. október 2026. Tilboð verða opnuð mánudaginn 19. október kl. 11:30. Fundargerð verður send bjóðendum eftir opnun.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn