Mistök við útlagningu ollu því að tjón varð á almannavarnalögninni NSL-4

Stýrihópur um vatnslagnir í Vestmannaeyjum fundaði nýverið með fulltrúum Subsea7, Verkís og lögmanni sveitarfélagsins til að fara yfir skýrslu vegna tjóns sem varð á almannavarnalögninni NSL-4 við útlagningu hennar. Í skýrslunni viðurkennir Subsea7 a

Mistök við útlagningu ollu því að tjón varð á almannavarnalögninni NSL-4
Mynd: Braggi.is

Stýrihópur um vatnslagnir í Vestmannaeyjum fundaði nýverið með fulltrúum Subsea7, Verkís og lögmanni sveitarfélagsins til að fara yfir skýrslu vegna tjóns sem varð á almannavarnalögninni NSL-4 við útlagningu hennar. Í skýrslunni viðurkennir Subsea7 að mistök við framkvæmd útlagningarinnar hafi valdið tjóninu.

Fram kemur að ferlar um borð hafi ekki tryggt að útlagningin héldist innan öryggismarka. Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, leggur áherslu á mikilvægi þess að vinna málið vel og bendir á að verkefnið hafi verið vel tryggt. Næstu vikur munu fara í að meta tjónið og koma verkefninu aftur á upphaflegan farveg.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær

Heimild: Vestmannaeyjabær

Deila Facebook X LinkedIn